Viltu fá heimsókn
Hefðir þú viljað fá heimsókn frá okkur í félaginu þegar þú misstir þitt barn?

Nei

 

 

 

Hér getur þú lesið það sem skrifað hefur verið í gestabókina Lítilla Engla. Ef þú vilt skilja eftir skilaboð, skrifaðu í gestabókina.
Fjöldi færslna í gestabókinni er 314.
Þú er að skoða færslur 73-80.
 


hvenær: 5. mars 2005 kl. 00:05
nafn: Ela
texti: Ég vil minnast elsku drengsins míns sem hefði orðið sex ára í dag. Guð veri með þér. Mamma

hvenær: 3. mars 2005 kl. 04:58
nafn: Laeila Jensen  ::  laeilaj74@hotmail.com
texti: Ég lenti í þvi um dagin að vina fólk mitt missti barnið sitt fram að því hélt ég að ég væri búin að vera voðalega dugleg að vinna á sorginni svo fellur sprengjan og þau voru búin að reyna að verða ólétt lengi alveg eins og ég, það varð bara eins og mér hefði verið fleygt til baka um mörg ár og ég upplífði þetta allt saman aftur, en svo fór hún að tjá sig um hvernig henni leið hverju sinni og ég uppgvötvaði að það hjálpar mér alveg svakalega að lesa það sem hún er að segja mér finnst eins og ég sé að skrifa þetta allt saman. En Guð blessi ykkur og gangi ykkur sem allra best

hvenær: 20. febrúar 2005 kl. 21:37
nafn: Matthildur Stefánsdóttir
texti: Það er 1 ár i dag sem dóttir mín kom og kvaddi þennan heim. Það er ótrulegt hvað þetta er erfitt en núna veit ég hún er á góðum stað.Ég mun allaf sakna hennar og ég hugsa allaf til hennar.Núna er hún hjá hinum englunum og liður vel.Það sem ég var bara 19 ára þegar hún fer þá veit ég það var einhvad sem gerði að hún gat ekki verið hér hjá mér.En guð blessi ykkur öll sem hefur lent í að missa barn....Takk fyrir frábæru síðu...

hvenær: 12. febrúar 2005 kl. 02:52
nafn: Laeila Jensen Friðriksdóttir  ::  laeilaj74@hotmail.com
texti: Ég vildi bara segja að þetta er frábær síða þar sem fólk getur tjáð sig um sorgina við barnmissir. Ég lenti í því að missa elsku litlu dóttir mína 1999 á 40 viku. Guð blessi ykkur og styrki....

hvenær: 7. febrúar 2005 kl. 21:05
nafn: Kolla+hrannar+Salka Snæbrá   ::  kollagu@internet.is
texti: Í dag eru liðin 3 ár síðan litli drengurinn okkar dó í móðurkviði. Hans er sárt saknað.

hvenær: 6. febrúar 2005 kl. 15:41
nafn: Freyja  ::  freyja1975@chello.nl
texti: Ik wil iedereen sterkte toewensen met het verlies van hun kindjes Ik ken de pijn en verdriet ook Groeten Freyja

hvenær: 31. janúar 2005 kl. 22:14
nafn: Kristín Hreiðarsdóttir  ::  k.hreidarsd@simnet.is
texti: Í kvöld horfði ég á fréttir stöðvar 2, þar voru Einar og Karen sem höfðu misst dóttur sína fyrir tíu dögum á sjúkrahúsinu í Keflavík. Miklar líkur eru á því að ef almennileg þjónusta við suðurnesja búa væri á fæðingar deildinni þá væri barnið þeirra lifandi í dag og dóttir mín sem ég fæddi á Landspítalanum 4 apríl 2004, en ég horfði á hana deyja í sónarnum á fæðingar deildinni í Keflavík 3 apríl. Ég flutti í burtu frá Suðurnesjum í Október 2004 hingað til Akureyrar, þar fæddi ég son 5 vikum fyrir tímann 9 mai 2003.Ég vona innilega að þetta viðtal í kvöld verði til þess að fæðingar deildin í Keflavík komi til að geta veitt þá þjónustu sem verðandi mæður þurfa að fá, eins og staðan er í dag þá mæli ég ekki með því að konur fari til Keflavíkur til að fæða börnin sín.Ég vildi óska þess að ég hefði gert það sem Karen og Einar gerðu kannski það hefði orðið til þess að dóttir þeirra væri á lífi í dag, en hver veit???

hvenær: 27. janúar 2005 kl. 22:43
nafn: Sjöfn
texti: Elsku Hildur, Sigurpáll, Egill Breki og Hrafnkatla. Í gær voru fjögur ár síðan Dagný fæddist. Því miður gafst okkur ekki sú gæfa að sjá hana stækka og dafna. En hún lifir áfram í hjörtum okkar og hefur þrátt fyrir stutta dvöl hér áorkað svo ofboðslega miklu. Hún hefur með sínu lífi snert miklu fleiri en þið munið nokkur tíman vita og það er það besta. Til hamingju með daginn elsku vinir. Ykkar Sjöfn, Úlfur, Ólafur Evert og Karin Sigríður.

 

© 2002 Litlir Englar   •   litlirenglar@litlirenglar.is