Viltu fá heimsókn
Hefðir þú viljað fá heimsókn frá okkur í félaginu þegar þú misstir þitt barn?

Nei

 

 

 

Hér getur þú lesið það sem skrifað hefur verið í gestabókina Lítilla Engla. Ef þú vilt skilja eftir skilaboð, skrifaðu í gestabókina.
Fjöldi færslna í gestabókinni er 314.
Þú er að skoða færslur 65-72.
 


hvenær: 14. mars 2005 kl. 10:04
nafn: Þórunn Hulda  ::  thorunn.sigurdardottir@isb.is
texti: Kærar þakkir fyrir frábæran vef,ánægjulegt hve vel er tekið á þessum málum í dag! 2.október 1974 eignuðumst við hjónin okkar annað barn, drengur og var ég komin 9 mán. á leið. Ástæðan var að naflastrengurinn klemmdist milli okkar og þar með var þetta búið. Krufning leiddi þetta í ljós. Síðar eignuðumst við 2 fallega drengi 1975 og 1980 . Á þessum tíma ver ekki vaninn að gefa andvana fæddum börnum nafn og var ég mjög ósátt við það. Fékk síðan uppl. um að það væri hægt og börnin okkar fundu sameiginlega nafn á litla drenginn okkar. Þau nefndu hann Þór þar sem ég hafði þekkt hann best, falleg hugsun á bak við það. Við settum nafn á leiðið hans og hefur mér liðið miklu betur síðan, get talað um hann með nafni og hef oft orðið hans vör. Í dag eigum við hjónin 3 heilbrigð börn sem öll eru uppkomin, 1 dóttir og 2 syni. Þar að auki 4 falleg barnabörn, allt stúlkur . Ég held að við sem höfum upplifað sorgina kunnum líka að meta alla góðu hlutina miklu betur. Á þessu ári eru 31 ár síðan við urðum fyrir þessari lífsreynslu,hún fyrnist ekki. Ég óska ykkur öllum sem hafið orðið fyrir svipaðri lífsreynslu alls hins besta!

hvenær: 14. mars 2005 kl. 05:08
nafn: Heiðrún
texti: Ég vil byrja á að þakka fyrir þessa fallegu síðu. Ég eignaðist litla Grím þann 16október 2004, hann fæddist á 34viku og var 10merkur. Hann var 12daga á vökudeild en fékk svo að koma heim, hann stækkaði vel og var framar öllum vonum. Þann 28nóvember lést fallegi strákurinn minn úr vöggudauða. Ég þakka góðum Guði fyrir þessa yndislegar 6vikur sem ég þó fékk með litladrengnum mínum. Það er svo sár að þurfa að fylgja barninu sínu til grafar og hafa engin svör um hvað hefur komið fyrir engilinn minn, það huggar mig þó að ég veit að móðir mín passar hann og hvíla þau nú saman. Ég vona að Guð vaki yfir ykkur og litlu englunum.

hvenær: 13. mars 2005 kl. 22:05
nafn: Halldóra Kristjánsdóttir  ::  flikkflakk_17@hotmail.com
texti: Ég get ekki ýmindað mér hvernig það er að missa barn þar sem það hefur aldrei komið fyrir mig. Mamma mín lenti í því að missa barnið sitt. Hún hafði átt mig fyrir en þetta var fyrsta barn hennar og fósturpabba míns. Hún var 41 vikur gengin og henni hafði fundist eitthvað vera að en sagði aldrei neitt af því að læknarnir sögðu allt væri í lagi og hún vildi ekki véfengja læknana. Hann var svo tekinn með keisara 31.mars 1988. Mér finnst það samt agalegt það sem var sagt við fósturpabba minn, það var sagt við hann að þetta hafi bara verið fóstur en það er ekki rétt. Núna á mamma tvö börn með fósturpabba mínum og þau eru bæði heilbrigð. Það var samt fylgst extra vel með þeim meðgögum vegna þess sem gerðist með litla bróður minn sem hefði orðið 17 ára í þessum mánuði. Ég var sjálf að eignast litla yndislega stelpu 28.feb. og ég get ekki hugsað mér að lifa án hennar og ég veit ekki hvað ég myndi gera ef hún myndi deyja. Ég samhryggist ykkur öllum sem hafið misst barn, hvort sem það var andvana fætt eða dáið ungt. Guð blessi ykkur öll og hjálpi ykkur að takast á við sorgina.

hvenær: 13. mars 2005 kl. 20:08
nafn: Tinna
texti: vááá Ásta ... hvað þú ert dugleg!!! en ég samhrygist þér alveg hryllilega mikið með þína missi.. og samgleðst þér einnig með þína engla.. gangi þér ótrúleg vel á þessari meðgöngu.. og byð ég góðan Guð að þú eigir eftir að njóta þess að vera ófrísk og fæðingin verði góð... vá ég lít upp til hetju eins og þig.. Takk fyrir að koma inn og hjálpa öðrum með þessum sorglegu orðum þín... *knús* ;)

hvenær: 13. mars 2005 kl. 10:12
nafn: Ásta Þórisdóttir  ::  asta@vortex.is
texti: Hæ, er að líta á þessa síðu í fyrsta skipti, var að lesa DV og þar var talað um litlirenglar.is. 11. september 1989 eignuðumst við Önnu Björg sem fæddist á 24. viku meðgöngu, hún lifði í 2 klst.. 11. júlí 1990 eignuðumst við Hugrúnu Ósk einnig á 24. viku meðgöngu hún lifði í 40 mín.. 26. nóvember 1991 eignuðumst við Rúnar Þór á 28. viku meðgöngu, Rúnar Þór náði að halda lífi og er rúmleg 13 ára í dag, hann er líkamlega fatlaður en mjög skír og duglegur strákur. 4. janúar 1997 eignuðumst við Sigmar Inga á 35. viku meðgöngu, Sigmar Ingi er heilbrigður strákur, skír og duglegur. Á þeirri meðgöngu lá ég 11 vikur inn á meðgöngudeild Landspítalans. Í dag er ég að byrja 13. viku á fimmtu meðgöngunni minni og verð ég eflaust í mest allt sumar inni á meðgöngudeild Landspítalans, þetta er frekar erfitt þar sem ég bý á Blönduósi og bý við erfiðar heimilisaðstæður, en ég á góðann mann, við höfum gengið í gegnum þetta allt samstillt, og munum gera það áfram. Gangi ykkur öllum vel með ykkar líf og munið að litlu englarnir ykkar, eru ykkar börn. Kveðja til ykkar allra Ásta Þórisd.

hvenær: 9. mars 2005 kl. 17:16
nafn: Bryndís  ::  bev@simnet.is
texti: Ég vil byrja á því að þakka fyrir þessa síðu, Sjálf hef ég misst 2 sinnum fóstur, ´88 og ´89. En í dag á ég 4 heilbrigð börn, Ein dóttir mín sem er 17 ára var að missa fóstur genginn ellefu vikur, hún tekur það mjög nærri sér, og ég skil hana mjög vel, en þessi síða hefur líka hjálpað henni mikið. Ég vil votta ykkur öllum samúð mína og bið Guð að styrkja ykkur. Það kemur dagur eftir nótt, og sólin er á bak við skýin, og náð Guðs er ný á hverjum degi. Kær kv. Bryndís.

hvenær: 8. mars 2005 kl. 23:51
nafn: TIL BELINDU .... Tinna
texti: BELINDA ÝR..... Sá það sem þú skrifaðir, ég var að lenda í þessu, þetta er svo hræðilegt og hræðilegra en aðrir geta imyndað sér, mitt var komið rúmlega 11 vikur, þetta er svo mikil sorg þegar maður er búin að imynda sér lífið með barninu, þess vegna búin að skoða nöfn....En ég vona og trúi því að þú eignist annað barn.. trúðu því bara að barnið sem þú misstir komi aftur.. ég vil trúa því.... og mundu líka að Drottinn er svo miskunnsamur og góður Guð að hann hlustar.. talaðu við hann, ef t.d þú ert að reyna eignast annað barn.. Gangi þér rosalega vel Belinda, Guð geymi þig...

hvenær: 8. mars 2005 kl. 23:38
nafn: Tinna
texti: Ég vil byrja á því að hrósa þessari síðu.. ég er aðeins 17 ára gömul og ég lenti í því að missa fóstur eftir 11vikur og vá sorgin og söknuðurinn sem ríkir þó svo að þetta var ekki alveg rétti tíminn þá var Þetta einhvað sem ÉG ÁTTI og var INNÍ MÉR.... Og þið sem lendið í svona, leyfið ykkur að syrgja það er holt,það er ekki "asnalegt" að gráta yfir svona... En við getum samt huggað okkur yfir því að barnið mitt sem og ykkar er í örmum Drottins.. Guð blessi ykkur og styrki í sorginni...

 

© 2002 Litlir Englar   •   litlirenglar@litlirenglar.is