Hér getur þú lesið það sem skrifað hefur verið í gestabókina Lítilla Engla. Ef þú vilt skilja eftir skilaboð,
skrifaðu í gestabókina.
Fjöldi færslna í gestabókinni er 314.
Þú er að skoða færslur 49-56.
hvenær: 16. júlí 2005 kl. 03:04
nafn: Mamma tveggja engla
texti: Mikið er þetta falleg síða hjá ykkur.
Ég á 2 litla engla, annar fór í júlí 99, þá bara 4-5 vikna fóstur.
Hinn engilinn minn fór í jan 04 þá 7 vikna, hann var tvíburi dóttir minnar sem fæddist heilbrigð haustið 04.
Ég reyni að hugsa sem minnst um englana mína, það er of sárt að hugsa um þá.
En ég þakka guði fyrir dóttir mína á hverjum degi, fyrir mér er hún mikið kraftaverk að hafa náð að halda lífi í veikindunum sem ég gekk í gegnum, og blæðingarnar á meðan tvíburi hennar var að skolast út.
hvenær: 7. júlí 2005 kl. 14:43
nafn: margrét jónsdóttir :: mj72@simnet.is
texti: þeta er yndisleg síða.
hvenær: 12. júní 2005 kl. 23:55
nafn: Íris Ólafsdóttir :: irishafnir@hotmail.com
vefur: http://www.barnaland.is/barn/18063 texti: Svakalega er þetta faleg síða,ég á lítin eingil sem dó þegar ég var komin 3 mánuði á leið,ég var bara 16 ára þegar þetta gerðist og ég hugsa oft um litla barnið sem ég fék ekki að njóta,núna á ég 4 börn og ég þakka Guði fyrir þau öll.Ég á líka lítinn bróðir sem dó þegar hann var 2 1/2 árs eftir migil veigindi og pabbi min og konan hanns mistu litla stelpu eftir 6 mánaða meðgöngu,og það var mjög erfit vegna þess að ég eignaðist næst elstu stelpuna mína nokrum dögum seina.kv Íris
hvenær: 27. maí 2005 kl. 00:48
nafn: Björk
texti: Þökk fyrir yndislega síðu og samúðarkveðjur sendi ég öllum þeim sem eiga um sárt að binda. Ég missti fóstur í síðustu viku, gengin 9 vikur og það var mjög sárt því tilhlökkunin var mikil hjá okkur hjónunum og þetta var hlutur sem ég átti alls ekki von á að mundi gerast, maður tekur alltof mörgu í lífinu sem sjálfgefnu en reyndin er önnur. Við erum samt sem áður lánsöm að eiga tvö heilbrigð börn 16 og 8 ára gömul. Ég vona að guð gefi að okkur lánist að eignast barn aftur en ég mun aldrei gleyma litla lífinu sem kviknaði en var ekki ætlað að vera hjá okkur.
hvenær: 11. maí 2005 kl. 18:44
nafn: Brynja
texti: ég atla að þakka ykkur fyrir þessa síðu
ég misti sjálf fóstur á 19 viku og það var 96
í dag á ég tvö börn 98 og 02 mótel og ég er feginn að ég fékk að fá þaug
hvenær: 8. maí 2005 kl. 17:22
nafn: Ása Sverrisdóttir :: stefanasa@isl.is
texti: 'Eg vil þakka fyrir frábært framtak. Ég missti fóstur 6 vikur gengin og ég huksa enn um það 16 árum síðar. Þetta fer aldrei.
hvenær: 7. maí 2005 kl. 17:00
nafn: Elín Úlfarsd. :: elinu@simnet.is
texti: Þessi síða er mjög gott framtak. Fyrir 12 árum missti ég fyrsta barnið mitt, fósturgalli greindur í sónar og barninu ekki hugað líf. Mikið hefði verið gott að geta talað þá við einhvern sem hafði upplifað það sama. Fyrir 3. mán. eignaðist ég dreng og á fyrir 2 stúlkur. Minningin um englana okkar lifir. kv. Elin
hvenær: 16. apríl 2005 kl. 15:49
nafn: Guðjón :: gjon56@hotmail.com
texti: Þetta er falleg og tilfiningarík síða, þar sem fólk getur talað um sorg sína og séð að það er ekki einsamalt í þessum málum.
Ég þakka fyrir góðar upplýsingar varðandi lokaverkefni mitt í skólanum.
|